27.10.2008 17:30:36 / farfugl
Hjálpi mér hamingjan. Nú má ég hafa mig alla við til að fara ekki að hlæja að heimskunni í sjálfri mér.
Það getur valdið misskilningi að flýta klukkunni svona á milli árstíða. Sérstaklega fyrir svona ,,smáborgara”, í víðum skilningi þess orðs. Þegar ég hugsa til baka um helgina, þá hef ég lifað í misskilningi síðustu 2 daga. Núna skil ég af hverju vídjóleigugaurinn skildi ekki til hvers ég var að hlaupa á milli staða til að ná fyrir kl 22 í búðina. Ég hafði víst heilan klukkutíma til að dúlla mér. Í gærkvöldi áður en ég fór að sofa, kveikti ég á tölvunni og sá þá að klukkan í henni var “vitlaus”. Hún var klukkustund á undan. Hvernig mátti þetta vera? Hugsaði ég áður en ég breytti henni.
Svo fór ég að sofa. Klukkutíma fyrr en ég hélt. Og mætti í skólann klukkutíma of snemma... stóð svo óþolinmóð, ein fyrir utan stofuna og botnaði ekkert í því hvað ræstikonan var að dúlla sér þarna inni, það var jú bara tímaspursmál hvenær tíminn ætti að byrja, ALLIR hinir nemendurnir hlytu að fara að koma og kennarinn sömuleiðis. Á endanum gafst ég upp og spurði hvort ég mætti ekki bara koma inn. ,,Nei, ég er ekki búin ennþá”. – Já en ég er sko að fara í tíma hérna klukkan níu! ,,Já, en klukkan er átta..?” NEI, HÚN ER NÍU. ,,Ó”. Sagði konan og hélt áfram að þrífa. Hvað er eiginlega á seyði hérna? Hvar eru allir?! Ég labbaði inní enskudeildina og rak augun í mann sem sat á skrifstofustól. –Hvað er klukkan? ,,Hún er fimm mínútur yfir átta”. Fokk. Er allur heimurinn orðinn ruglaður??!! Er mig að dreyma þetta? Ég fór aftur til ræstikonunnar sem var enn í sömu stofu og sagði að hún hefði haft rétt fyrir sér, klukkan væri bara átta. ,,Já ég veit, ég vildi bara ekki þrátta”, sagði konan. ,,Klukkunni var flýtt á laugardaginn”. Ég veit ekki hversu lengi ég glápti á konuna, en einmitt á þessu augnabliki fékk ég flassbakk úr allri helginni, svona eins og gerist í bíómyndum. Svo fór ég að hlæja og ég held að það hafi hrætt hana, a.m.k. hló hún einhverjum taugaveiklunarhlátri.
Held að strákarnir við hliðiná mér haldi að ég sé skrýtin. Kannski ég reyni að þurrka hálfvitaglottið úr andlitinu.
»
22.10.2008 09:29:42 / farfugl
Ad vera eda vera ekki í latínu og velja sér annan kúrs?
Borda perúanskan mat eda kúbverskan?
Svona er lífid flókid.
»
20.10.2008 15:42:55 / farfugl
Ég skammadi latínukennarann í dag.
Grrrrr.
»
17.10.2008 11:53:54 / farfugl
Ég gleymi því seint, þegar ég fór inní myndavélaverslun til að spyrjast fyrir hvar ég kæmist í passamyndatöku, því ég hafði gengið um bæinn og hvergi séð ljósmyndastofu. “Þú ert komin á rétta staðinn!” sagði maðurinn í afgreiðslunni. Ég gerði fastlega ráð fyrir því að í bakherberginu væri þá aðstaða fyrir slíkt. En nei, í horninu í búðinni var tunna sem maðurinn sagði mér að sitja á, svo vippaði hann upp digital myndavélinni sinni, taldi niður: tres, dos, UNO! *Klikk* Þessi mynd af mér er frábær. Ekki af því að hún er góð, heldur er svipurinn á mér kostulegur. Hissa og passa að klikkast ekki úr hlátri framan í gæjann sem tók starfi sínu allt of alvarlega.
Þessi svipur er hálf fastur á mér. Þegar ég fór í fyrsta tímann í arabísku, varð mér heldur en ekki um sel. Í stofunni eru bara nokkrir stólar, með áföstum borðum. Fyrir rétthenta. Svo ég má snúa mér í hálfhring allan tímann sem ég er að læra að skrifa þessa frumlegu “stafi” sem eru ekkert nema hlykkjur, punktar og tungl.
Svo kom svipurinn aftur þegar mér var sagt að það mætti ekki henda pappír í salernið. En óspennandi.
Það er glápt á mig eins og geimveru úr lélegu tónlistarmyndbandi af því að ég er í gull-leggings. Eða kannski af því að ég átti ekki skó við pilsið, svo ég hljóp útí búð eftir skóla og keypti nýja og fór beint í þá... eða kannski af því að pilsið fer alltaf upp og ég reif það áðan af því að ég reyndi að tosa það pent niður. Not my day. Held ég fari bara heim og bíði þess að leggja af stað á Nada Surf tónleikana.
Að lokum langar mig að skora á einhvern til að fara í Skífuna eða Kolaportið fyrir mig og kaupa Djöflaeyjuna fyrir mig og senda mér. Ég millifæri svo á viðkomandi fyrir kostnaðinum. Stillti nefnilega “óvart” á shuffle á iPodinum í gærkvöldi og þá kom allt í einu “Jæja, þá er maður kominn á þessa Djöflaeyju”.
http://i239.photobucket.com/albums/ff210/RixdeTrix/Photo127.jpg
»
13.10.2008 15:44:07 / farfugl
Já, loxins á ég heima einhversstaðar. Komin í rúmgóða íbúð í miðbænum sem ég deili með einni ítalskri stelpu og annarri spænskri. Hvorug þeirra talar ensku að ráði, svo ég má gjöra svo vel að bjarga mér á spænsku alla daga. Sem er gott. Herbergið mitt er stórt, eiginlega 3 manna herbergi, svo nú er engin afsökun fyrir að koma ekki í heimsókn, þurfið amk ekki að kaupa gistingu. Svo er stofan ennþá stærri og sófinn lengri en sá sem var í Grettunni ☺
Anna Sigga hélt uppá þrítugs afmælið sitt um helgina, nokkrir vinir hennar komu frá Íslandi og ég borðaði besta mat sem ég hef oní mig látið síðan ég kom, á Sopa Bopa. Daginn eftir notuðum við í afslöppun í arabísku baðhúsi. Almáttugur minn, þangað ætla ég aftur þegar ég vil dekra mig. Gamalt, risastórt arabískt hús með mörgum mismunandi laugum. Volg laug, heit laug, ísköld laug, nudd laug, salt laug og svo tyrkneskt gufubað sem byggist á léttri gufu (sem maður sér samt ekki í gegnum) og sterkri aroma. Til að toppa þetta allt saman, fór ég í nudd á milli þess sem ég svamlaði. Arabískt slökunarnudd. Svo er tehús, þegar maður er búinn að busla nægju sína. Svona eyðir maður sunnudegi! Sjáið bara: http://www.airedesevilla.com/eng/index.htm
Í dag er frí í skólanum, svo ég nýtti tækifærið fyrst ég var ein heima og skúraði. Verst að ég kann ekki lagið á svona skúringamoppu sem er bara prik með lafandi tusku á öðrum endanum...
»
05.10.2008 17:31:19 / farfugl
Ég fór á pöbbarölt í gær með 3 spánverjum. Það var forvitnilegt. Verð samt að játa... þrátt fyrir að ég reyki með víni, að ég saknaði svolítið reykingabannsins á Íslandi. Já og ferska loftsins. Margir barir eru pínku litlir, gluggalausir og án loftkælingu/viftu. Ég, íslendingurinn var orðin andstutt og fámál og eiginlega bara að kafna í eitt skiptið. Þá ruku þau með mig út til að draga andann.. sem hefði verið betra heima, því loftið var 25 stiga heitt og rakt um miðja nótt. Ég ætla ekki að taka hreinu lofti sem sjálfsögðum hlut framar. Margir barir hafa heldur enga tónlist. Asnalegt.
Spánverjar nota vín sem bland. Ég gleymi alltaf að stoppa barþjónana þegar ég panta mér sterka drykki. Enginn helvítis sjússamælir hér, bara hella þar til að glasið er orðið hálf fullt af áfengi, svo verðuru bara að reyna að koma nokkrum dropum af gosi með. Þetta hefur oftar en ekki orðið gríðarlegur þynnkuvaldur daginn eftir. Finnst eiginlega ekkert gott að drekka 80/20. Í gær hló einn af þessum 3 kunningjum að mér þegar ég sagði að hann ætti að stoppa barþjóninn af þegar 10 cm af glasinu væri vín.
Hef aldrei áður verið kölluð tepra. Og mér líkar það ekki.
»
02.10.2008 17:52:33 / farfugl
Enter — Forystugrein
Djöfull vorum við full í gær. Almáttugur minn einasti. Djöfull vorum við mökkflennihelluð og gersamlega útúr því.
Úff.
Þetta byrjaði svosum nógu vel. Allir í góðu stuði. Notaleg stemning.
Allir til í að skemmta sér, lyfta sér aðeins upp. Kíkja í bæinn. Fá sér
einn.
En svo bara gerðist eitthvað. Einhvern veginn. Við bara misstum það.
Kannski vorum við bara of þreytt, eða drukkum of hratt – og of mikið.
Blönduðum tegundum og slepptum okkur í skotunum. Hvað veit ég? Þetta
fór bara úr böndunum.
Á einhverjum tímapunkti fórum við yfir strikið. Ég veit ekki hvenær.
Kannski var það ekki fyrr en undir lokin. Kannski var það fyrr. Ég man
það ekki. Við urðum bara algerlega ... hömlulaus. Reyndum við vitlaust
fólk. Dönsuðum. Döðruðum. Splæstum. Og drukkum. Stíft.
Það var gaman. Ég ætla ekki að neita því. Það var ógeðslega gaman.
Hjá öllum. Loksins. Við áttum heiminn. Við! Við sem aldrei áttum neitt.
Við gátum allt og við máttum allt. Og við gerðum allt ... allt.
En svo var bara heimildin búin. Klippt á kortið. Þá vöknuðum við.
Eða rönkuðum í öllu falli við okkur. Slöguðum heim, gleyptum í okkur
bólgueyðandi og skjögruðum í bælið. Allt hringsnerist fyrir augunum á
okkur, jafnvægið farið. Og sjálfsstjórnin.
Mundum síðast eftir okkur á hnjánum, spúandi. Öllu.
Já djöfull vorum við full í gær. Öll. Og guð minn góður hvað við erum timbruð í dag.
Mér þótti við hæfi að setja þetta inn, úr því að fréttirnar sem ég les að heiman eru svona leiðinlegar.
www.baggalutur.is
Skoðað þann 2. október 2008
»
01.10.2008 22:16:16 / farfugl
Hlutirnir ganga sinn vanagang og sólin skín ennþá á okkur í suðrinu. Skólinn er byrjaður og mér finnst ekki gott að sitja sveitt á bekk. Þetta er svo gamaldags að við erum á bekkjum.... Hitinn er aðeins að verða temmilegri, ekki nema 30 stig á daginn, svo að ég er ekki jafn örmagna. Húsnæðisleit stendur enn yfir, mér hafa boðist nokkrir, misgóðir staðir en ég er ekki tilbúin í að borga helminginn af innkomunni í leigu. Frekar í bjór. (úbs). Svo í gegnum það vesen hef ég hitt skemmtilegt fólk í kaffisopa útí bæ. Eins og er, er ég að spá í að finna íbúð fyrir mig og 2 stráka frá Cádiz, kynntist öðrum þeirra og held að það yrði geðveikt gaman. Vorum meira að segja búin að finna íbúð, en auðvitað endaði leigusalinn á að svíkja okkur. Gaddemmitt... En þetta verður bara ævintýri. Hlæ að þessu seinna.
Fyrstu tímarnir mínir 3svar í viku er latína. Latín vulgar, sem var töluð á götunum en ekki bókmál. Óþarfi að taka fram að ég er eini íslendingurinn og heilinn á mér var að hrynja við þýðinguna á textanum í 1. tíma. Hvernig datt mér í hug að fara í latínu?!??!! Þetta er samt pinku gaman sko.. bara áskorun!
Hef ákveðið að tjá mig ekki um efnahagsmálin á Íslandi. Nóg fyrir mig að fara á mbl.is og láta neikvæðnina hellast yfir.
Hér á Plaza Alfalfa er eilíft stuð. Alla daga. Jafnt þriðjudaga sem laugardaga, allir eru til í að lyfta sér á kreik, fá sér 2-3 fyrir háttinn og hafa hátt. Ég er komin með hrikalegt ógeð á hysterískum harmónikkuleik meirihlutann úr sólarhringnum, ópum og veinum sem held að eigi að vera söngur og svo einhver trompet túli sem þeytir hornið eins og hann eigi lífið að leysa. Ég trúi því ekki að fólk borgi fyrir þetta. Þessar litlu sálir sem bara vildu fá sér smá tapas neyðist til að borga genginu til að látunum linni.
Jæja, ég spái því að þetta yndislega N-Afríku net fari að detta út, svo ég hendi inn færslunni á meðan ég get.
Hasta luego!
»