06.05.2009 10:57:07 / farfugl
Hliðarspor.
Maður má ekki snúa sér í hálfhring, þá er kominn maí!! Trúiði þessu? Gleymdist ekki apríl? Eða var ég bara með hugann á flugi allan tímann?
Jú núna man ég. Páskar… Semana Santa og Feria de Abril. Það var fínt, þrátt fyrir nokkur skipti sem ég hrasaði. Summi og Brandon komu í heimsókn yfir páskana. Það var þvílíkt næs að fá að sjá kunnuglegt andlit. Ég og Summi höfðum ekki hist í 2 ár! Svona er að vera á þvælingi, hann er núna í London í leiklistaskóla. Verst var að á fyrsta djamminu okkar, var símanum mínum, kortunum mínum og myndavélinni hans rænt. Bögg, en við létum það sem minnst á okkur fá og héldum okkar striki á nóttunni.
Ekki nóg með að þessu hafi verið rænt, heldur hvarf fartölvan hennar Önnu úr íbúðinni einhverju seinna. Stórmerkilegt! Þvílíkt ólán á skömmum tíma. Síðan þá hef ég farið ótal ferðir uppá Lögreglustöð.
Feria de Abril var frábær. Fullt af fínum stelpum og konum í rosalegum kjólum, greinilega sumar sem lifa fyrir þetta einu sinni á ári. Svo eru ótal tjöld, sem mætti líkja við tjöldin á Þjóðhátíð, og þar inni situr fólk, borðar spænska skinku og tortilla sem það skolar svo niður með rebujito, sérstökum feria drykk sem er hættulega góður. Sjálf dressaði ég mig upp í spænskan kjól, með blóm í hári og sló um mig.
Annars er sumarið svo gott sem dottið inn!! Hér ætlar hitinn allt að drepa, oftast yfir 30 stig og logn. Ég hef verið að hugsa mikið um sumarið og hallast nú frekar að því að halda kyrru fyrir hér og leita mér að vinnu og húsnæði, held að það gæti reynst léttara hér en á Íslandi, auk þess sem hægt er að lifa talsvert ódýrara hérna.
Jæja. Ég er svöng. Bless.